sunnudagur, desember 25, 2005

Endurfæðing frelsarans???

Eins og flestir sem lagt hafa leið sína hingað inn hafa tekið eftir, þá hef ég ekki skrifað nokkurn skapaðan hlut í yfir eitt og hálft ár... Það er góð skýring á því.
Ég einfaldlega týndi sjálfum mér í smá stund og gleymdi þessu öllu...
hahaha hugsa eflaust margir og það geri ég líka.
En hvað um það...

Ég veit ekki hvers vegna, en mér datt allt í einu í hug yfir jólamatnum fyrr í kvöld að það væri sniðugt að fara að birta hugsanir sínar í letri á veraldarvefnum aftur, svona til að sýna lit í þessu samfélagi okkar. Hvað sem ég meina þá... (?)

Þar sem ég hef aðgang að tölvu í augnablikinu ákvað ég að reyna að fara að grenslast eitthvað fyrir um hvort ég gæti einhvernveginn komist inn á gömlu góðu (fjalla)grasareykinga síðuna. Það gekk og hér er ég nú.
...kominn aftur

Á næstu grösum (góðum grösum) mun ég reyna að "pósta" eitthvað sniðugt. Ekki samt vera bjartsýn, bræður og systur, á það að ég skrifi eitthvað reglulega eða verði mjög virkur í "blogginu". En ég kem til með að nota þetta svæði eitthvað í framtíðinni við skrif af ýmsu tagi. Hvort sem það verða djúpar, gunnar, fyndnar eða grafalvarlegar pælingar, þá er rauðhærði riddarinn snúinn aftur.


Jón Ingvar

föstudagur, júní 04, 2004

Ég var að spá áðan; hver ætli hafi fattað uppá nöfnum á litunum?
Væri skrítið ef grænt héti gult? Kannski ekki ef það hefði alltaf verið svoleiðis... En afhverju var sá sem fann uppá þessu að nefna litina? Hvað var hann hugsa þegar hann sá rautt? OK, þetta er svona öðruvísi en þetta (þegar hann horfði á grænt) Hvað gæti mögulega verið það sem fékk hann til að detta í hug: RAUÐUR... eða GRÆNT...
Ég er að verða brjálaður, ég get þetta ekki lengur...

Fyndið þegar fólk svarar spurningu sem það veit ekki svarið við með því að segja: Af hverju er himininn blár?
Þá er alltaf gaman að segja: "Þeirri spurningu er nú auðsvarað, ljósið sem berst til okkar frá himninum er upphaflega hvítt sólarljós sem hefur síðan dreifst frá sameindum lofthjúpsins. Bláa ljósið, sem er hluti þess hvíta, dreifist miklu meira en annað og þess vegna er himininn blár". Gaman að sjá svipinn og heyra svörin þá...

En hvað veit ég? Ég veit að ég nenni þessu ekki lengur, og þó? En nei, ég nenni því ekki...

Gaman að vera kominn með svona nýtt útlit á bloggið sitt... ég held að ég hafi ekki verið svona glaður síðan ég fékk síðast heitan mat í hádeginu.´

Ég er búinn að ákveða það að ganga upp á fjallið hérna fyrir ofan Hvammstanga um helgina, kannski alla leið yfir... maður sér til. Fara snemma að sofa og vakna hress kl. svona 9 og leggja af stað og í hvaða veðri sem er.
Mér datt líka í hug að stoppa uppi á miðju fjalli og setjast þar að, verða "útigangsmaður" og lifa á því að stela mér kindum og éta gras en svo hætti ég við það.
En það var ekki fleira í dag, bless

fimmtudagur, maí 27, 2004

Skemmtilegt og Leiðinlegt.
Hún er skemmtileg sagan af honum Daða. Þegar mér líður illa og það er leiðinlegt hjá mér þá hugsa ég bara um hvað Daði er vitlaus og klaufskur og þá líður mér vel.

Ákvað að kíkja á bloggið hans Elwars áðan... hann er líklega kominn í frí, vegna þess að hann hefur ekkert tjáð sig um lífið í næstum mánuð...
Það er nú leiðinlegt
Þá bara að hugsa um Daða...
Núna er gaman